Takk allir sem mundu
eftir afmælinu mínu í gær, þið hin ættuð að skammast ykkar
Það
má aldeilis segja að ég hafi verið dekruð þennan afmælisdaginn og
fékk sannkallaða afmælishátið..hehe sem stóð bara í nokkra daga

Mamma eldaði
afmælismat fyrir mig á sunnudaginn og var það my all time favorite
Lasagna a la mamma og undursamleg salat með hvítlauksbrauði og allt
skolað niður með ísköldu kók light, nó af ís í eftirrétt með
súkkulaði sósu...nammi namm... Þar fékk ég æðislega gjöf frá Siggu
(mágkonuyndinu mínu) Miracle frá Lancome ásamt snyrtiveski og
snyrtivörum. Frá mömmu fékk ég loforð um gallabuxur að eigin vali,
mjög vinsæl gjöf 
Dagurinn í gær byrjaði svo
eins og flestir afmælisdagar mínar eru, frekar mishepnaðir. Ég
vaknaði allveg ógeðslega þreytt fór að kenna kom svo heim og var
læst úti
Frábært, pabbi og kara voru að koma frá flugvellinum og
þurfti ég því að kúra í bílnum mínum í 40mín og bíða! Þegar pabbi
og Kara loksins komu þá þurfti ég að keyra köru í skólan og pabbi
villdi óðum fara sofa enda luinn og þreyttur eftir langt ferðalag
frá USA. Á leiðinni til baka var ég orðin glorhungruð og ákvað að
treata sjálfa mig aðeins og kaupa mér afmælismorgunverð, fór heim
borðaði kökuna mína alein sem var svo vond í þokkabót

Svo fór nú eitthvað að
rætast úr deginum og Addinn minn hringdi og bað mig um að hitta sig
á kaffihúsi, við fórum á Deco og fengum æðislegan mat og áttum
góða stund, reyndar fór reykingarlyktin soldið í taugarnar á okkur,
þar sem annað okkar HATAR sígarettur og hinn helmingur okkar nýlega
hætti að fikta við svoleiðis horbjóð. Allavega jámm ég var komin að
því þegar Addinn sagði litla afmælisbarninu að vegna smá klúðurs
myndi ég ekki fá neina afmælisgjöf í dag og því mætti ég velja mér
eitthvað lítið og sætt sjálf á laugarveginum, ég valdi mér
gullfalleg rauð axlarbönd og var nú bara nokkuð ánægð með þau kaup
Nú þurfti Addinn minn að fara að vinna og var mér gefin þau
fyrirmæli að vera fín og sæt á slaginu átta.
...Okei munið þið eftir
því þegar ég var læst úti um morguninn og þurfti að kúra í bílnum
mínum, það var svo kallt úti að ég þurfti að hafa kveikt á bílnum!
Auðvitað varð ég bensínlaus í fyrstaskiptið á ævinni á leiðinni
heim!! Pabbi kom því betur fer og bjargaði mér úr þessum bimbólegu
aðstæðum eins og hann kallaði það.. Anyways svo fór ég til Önnu
krúsí og opnaði pakkann minn frá telpunum hjá henni, það var
gullfallegur Hendrika Waage hringur og gullfallegt
armband 
Á slaginu átta var ég
næstum því tilbúin og Arnar kominn, við skunduðum því 10mín yfir á
stað down town...Arnari fannst rosa sniðugt að keyra með mig nokkra
hringu um miðbæjinn og stoppa meðal annars á Hlölla bátum...Eftir
að við vorum búin að hringsnúast þarna nokkra hringi í kringum
Ingólfstorg með afmælisblöðruna mína enduðum við á
Sjávarkjallaranum. Ég verð bara að segja það að ég hef aldrei á
ævinni smakkað betri mat né vín, ji þetta var bara fullkomið!!
Þegar við vorum svo að fara södd og sæl eftir yndislegt kvöld,
rétti Arnar mér vitlausa kápu í fatahenginu!! Nema bara þetta var
ekki vitlaus kápa þetta var Nýja kápan mín!!!!
Ég fékk
Karen Millen kápuna sem ég er búin að væla um síðan í Janúar og var
löngu búin að sætta mig við að eignast aldrei, því hún seldist upp
á svona 5mín! Neibb minn elskulegi kærasti reddaði málunum og
pantaði hana!!
Jii ég er svo ánægð takk
ástin mín, fyrir yndislegan dag og fallegustu gjöf sem ég hef
fengið.. samt þótti mér vænst um hvað þú varst búinn að leggja
mikla vinnu í að skipuleggja þetta allt! Það er hugurinn á bakvið
flottu gjafirnar sem skiptir máli 
Takk takk ástin mín, mér
hefur aldrei liðið meir eins og prinsessu..
LOKSINS LOKSINS
segjir ég nú bara
Skemmtilega við daginn var líka að ég var
ekkert að búast við neinu og Addinn minn búinn að vera að
skipuleggja þetta í langan langan tíma 
Besti afmælisdagur sem ég
hef upplyfað án vafa
kv. Marín Prinsessa í
alvörunni
p.s. úff löng
færsla...